26.01.2012 16:49

meira af

svona, er búin að finna eða fá linka á myndagaman og þegar ég
dett í svona skemmtilegheit fer  ég alveg á kaf - enda mjög gaman að skoða og vinna með myndir það fer bara svo mikill tími í þá vinnu en þar sem frúin hamast við að prjóna á ófædda krílið
og sauma í bútunum og jafnframt er verið á fullu í ræktinni uhmmm þá gerist  stundum ekki neitt.......................en hér er   fyrsta verkið



23.01.2012 21:58

Stóri bróðir


Sæti prinsinn minn, sem hringdi í ömmu í gær til að segja henni hvað hann væri orðinn duglegur að leika einn ini í herbergi, fékk klukku inn til sín og þegar stóri vísirinn var komin niður um 10 mínútur þá var hann búin að vera aleinn að leika sér, rosalega duglegur þessi yndislegi drengur.
Bráðum kemur hann í heimsókn með pabba sínum og litla snáðanum, bara tilhlökkun hér.


 
Kveðja þar til næst.

18.01.2012 14:05

allir á leið

til útlanda eða hvað??????????emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon



það kostar ekkert að láta sig dreyma......eða hvað???????emoticon

08.01.2012 20:16

myndaflipp....


Gleðilegt ár kæru vinir og vandamenn.


Áramótin hjá okkur voru ansi fámenn og ljúf,
humar í forrétt - umm rosalega góður....   

efri myndin er frá áramótunum 2011 og
neðri myndin er tekin jólin 2005 þá vorum við á Kanarí

meira seinna,
kveðja frá frúnni.

01.01.2012 21:10

nýja myndaforitið





tilraun 1, er að prufa mig áfram með nýtt myndaforrit sem Fanney benti mér á,
þetta er frumraun mín í því, ég á örugglega eftir að bögga ykkur með svona myndum á næstunni, verð að fá frekari kennslu hjá stelpunni.
Gleðilegt ár og takk fyrir gamla.

29.12.2011 13:07

Hlakka til......


þegar pakkarnir fara að berast í þetta mánaðarverkefni sem kemur frá Bót.is
tólf pakkar á komandi ári og ég lofa ykkur að það verður saumað jafnóðum og pakkarnir koma...emoticon emoticon




er búin að fá alla 12pakkana í þetta teppi sem er pappírssaumur emoticon
ætla að geyma að byrja á því þar sem ég er ekki búin að skoða leiðbeiningarnar nógu vel
en þær eru á ensku, sé fyrir mér verkefni þegar maður hefur meiri tíma -
kannski hætt að vinna...hm.... þegar árin færast yfir eins og sagt er emoticon
..
er líka með fullt-fullt af verkefnum sem á eftir að klára og sum eru bara enn
í hausnum á mér...
meira seinna hafið það gott yfir áramótin og farið varlega með flugeldana.
kveðja frá frúnni.